Þú Býrð (Í Höfðinu Á Mér)




Vakna brosandi hvern morgun – Sólin læðist inn
Lífið leikur við mig sjálfan – enn um sinn
Ekkert breytir því – enginn annar fær þig

Þú býrð í höfðinu á mér
Hvert sem ég fer þú fylgir mér
Svo lengi – hve lengi – verður þú hjá mér

Hjálpar mér að lifa daginn – hvernig sem hann fer
Leiðumst saman gegnum lífið – hvert sem er
Ég er aldrei einn – enginn annar sér þig

Þú býrð í höfðinu á mér
Hvert sem ég fer þú fylgir mér
Svo lengi – hve lengi – verður þú hjá mér.